Heimastjórn í stað íbúaráðs
Við sem flokkur og heild viljum tryggja það að sveitarfélagið starfi sem heild. Við viljum tryggja aðkomu og áhrif heimamanna í sveitunum þegar kemur að málefnum sem varða þeirra nærumhverfi. Eftir að hafa rætt við aðila í öðrum sveitarfélögum og staðfest grun okkar, þá er almennari ánægja og skilvirkni með heimastjórn en íbúaráði.
Íbúaráð er sem stendur ákveðið tilraunaverkefni í Sveitarfélaginu Hornafirði. Upp hafa komið stór mál innan sveitarfélagsins sem varðar sveitirnar og vankantar verið á þrátt fyrir íbúaráð. Því íbúaráð hefur ekki nægt vægi og ekki nægt upplýsingaflæði.
Heimastjórn sinnir verkefnum sem varða landbúnaðarmál, menningarmál, umhverfis og deiliskipulagsmál og umsögnum um staðbundin málefni og leyfisveitingar, í samstarfi við sveitarfélagið. Við viljum vísa fleiri málum til umfjöllunar í sveitirnar svo þau njóti meira raunsæis. Við viljum færa aukið vald í heimabyggðina. Ákvarðanavaldið á ekki að vera á einum stað, fjarri viðfangsefninu.
Sveitirnar okkar eru perlurnar sem hafa gert sveitarfélagið að þeim vinsæla áfangastað sem það er. Sveitirnar þekkir enginn betur en íbúarnir í sveitunum. Færum þeim aukið vald með heimastjórn.
Miðflokkurinn á Hornafirði