Pistlar okkar fyrir sveitastjórnarkosningar 2026
Á döfinni hjá Miðflokknum á Hornafirði
Hver erum við
-

Reynir Ásgeirsson
Ég hef verið búsettur á Seljavöllum Hornafirði öll mín 32 ár. Ég á konu og eina ný fædda stúlku. Ég hef stundað eigin rekstur undan farin 12 ár og komið víða við í uppbyggingu á Hornafirði á þeim tíma. Stefna mín er skýr, ég vill stuðla að öflugu atvinnulífi þar sem að fyrirtæki sjá tækifæri í að fjárfesta og skapa störf á svæðinu. En öflugt atvinnulíf er undirstaða alls.
Ég brenn fyrir uppbyggingu Hornafjarðar og ég vill stuðla að uppbyggingu á öllum sviðum bæði hjá sveitarfélaginu sjálfu, fyrirtækjum og íbúum þess. Einnig vil ég létta til með barnafjölskyldum, Hornafjörður á að vera besti staður á Íslandi til að eignast og ala upp börn.
Oddviti
-

Stefán Freyr Jónsson
Er 26 ára og bý í Freysnesi í Öræfum. Giftur og á tvo syni, annar á fimmta ári og hinn á fyrsta ári. Ég starfa sem bóndi og er jafnframt varðstjóri hjá Slökkviliði Hornafjarðar. Nýlega lauk ég námi í brunaeftirliti.
Ég hef mikinn áhuga á landbúnaði og landgræðslu. Hef verið virkur í björgunarsveitinni Kára frá unglingsaldri og gegnt formennsku þar síðustu þrjú ár.
Ég legg ríka áherslu á uppbyggingu í sveitarfélaginu og bætta þjónustu við íbúa. Sérstaklega hef ég áhuga á frekari þróun í Öræfum, meðal annars hvað varðar sorphirðu og meðhöndlun úrgangs, svo sem járnarusls, timburs og spilliefna. Þá vil ég einnig stuðla að auknu öryggi og styðja við landbúnaðarmál í héraðinu.
Annað sæti
-

Herdís I. Waage
Hef búið á Hornafirði í 48 ár, með hléum. Ég er gift og á þrjú uppkomin börn og tvö barnabörn. Ég starfa sem aðstoðarskólameistari og kennari við FAS.
Er með meistaragráðu (MT) í kennslu erlendra tungumála og hef einnig lokið diplómanámi í stjórnun menntastofnana og matsfræði. Þá hef ég bætt við mig bókaranámi frá Háskólanum í Reykjavík og stefni að löggildingu í haust.
Ég hef mikinn áhuga á menntamálum, en einnig á umhverfismálum og legg áherslu á fallega bæjarásýnd sem má bæta hér á Höfn. Jafnframt tel ég mikilvægt að styrkja atvinnulífið með fjölbreyttum störfum sem uppfylla þarfir þeirra sem hér búa og laða unga fólkið okkar aftur heim.
Þriðja sæti
-

Erlingur Ingi Brynjólfsson
Ég er frá Haga í Nesjum Giftur Rut Guðmundsdóttur og eigum tvær dætur og 5 barnabörn Eigum og rekum Gistiheimilið Sefdalur Guesthouse að Haga 2 Verksmiðjustjóri í Fiskimjölsverksmiðju Skinney-Þinganes hf Með MM gráðu í stjórnun frá Háskólanum á Akureyri. Áhugamál mín eru 4x4 ferðalög um hálendi Íslands og fjölskyldan.
Ég brenn fyrir uppbyggingu og auknum atvinnu möguleikum fyrir ungt fólk í sveitarfélaginu
Fjórða sæti
-

Valur Pálsson
Suðursveitungur og Lónmaður. Búsettur á Höfn, starfandi verkstjóri í pípulögnum. Áhugamál eru veiðar og ýmisskonar handverk og njóta náttúru sveitanna.
Ég brenn fyrir málefnum sveitanna okkar og að sveitarfélagið í heild sinni sé aðlaðandi staður að búa á fyrir alla íbúa á öllum aldri.Fimmta sæti
-

Hilmar Þór Sigurjónsson
Ég er fæddur og uppalinn Öræfingur og bý í Svínafelli í Öræfum með konu minni, Sophiu Fingerhut sem er kennari í Grunnskólanum Hofgarði og tamningakona.
Ég rek tvö lítil fyrirtæki, Glacier Goodies matarvagninn í Skaftafelli og Öræfahesta ehf. sem er hestaleiga, hrossarækt og tamningastöð. Mitt helsta áhugamál er einnig vinnan mín, sem eru hestarnir og uppbygging sveitabæjarins okkar Sophiu í Seli í Svínafelli.Ég hef búið víða en hér er langbest að búa og ég vil leggja mitt af mörkum til að svo verði áfram og að í sveitarfélaginu skapist aðstæður sem gerir fólki auðvelt fyrir að byggja upp sitt líf og betra samfélag.
Sjötta sæti -

Hjörvar Hauksson
Ég er 29 ára, fæddur og uppalinn Hornfirðingur. Ég bý í Nesjum með Sóleyju Lóu og saman eigum við eina árs gamla dóttur. Við rekum saman gistiheimilið Sauðanes Guesthouse ásamt verktakafyrirtæki sem sérhæfir sig í fjölbreyttri vélavinnu og steinsögun/borun. Í frítíma mínum hef ég gaman af skotveiðum, bústörfum og að njóta samveru með fjölskyldunni. Ég hef áhuga á að leggja mitt af mörkum til að efla atvinnulíf og bæta ásýnd sveitarfélagsins. Hornafjörður á að vera eftirsóknarverður staður til búsetu og áfangastaður sem fólk vill sækja heim.
Sjöunda sæti -

Amor Joy Pepito Mantilla
Ég er fædd á Filippseyjum og flutti til Íslands árið 2005. Ég er gift og stolt móðir þriggja fallegra barna. Eftir 21 ár í samfélaginu á Höfn tel ég tímabært að leggja mitt af mörkum með virkri þátttöku í bæjarmálum.
Ég kem með reynslu sem einstaklingur með erlendan bakgrunn og hef kynnst bæði tækifærum og áskorunum sem fylgja því að byggja upp líf í nýju samfélagi. Ég vil nýta þessa reynslu til að styrkja velferðarkerfið, sérstaklega í málefnum innflytjenda og fjölskyldna.
Ég hef skýra sýn um samfélag þar sem allir fá raunveruleg tækifæri til þátttöku, hvort sem er í skóla, menningu eða daglegu lífi. Fræðslu- og menningarmál eru því einnig mér mikilvæg, þar sem þar er grunnurinn að sterku og samheldnu samfélagi. Ég er tilbúinn að taka ábyrgð, hlusta og vinna markvisst með öðrum að lausnum sem bæta lífsgæði íbúa á Höfn.
Áttunda sæti
-

Atli Þór Arnarson
Ég er fæddur og uppalinn Hornfirðingur og bý í dag á Höfn með Önnu Lind og börnunum okkar þremur. Ég er einn af eigendum Íshússins veitingastaðar og starfa ég þar. Í frítíma mínum nýt ég þess helst að vera með fjölskyldunni. Mín helstu áhugamál eru golf, skotveiði og ferðalög.
Mig langar að taka virkan þátt í að efla samfélagið okkar og skapa betri framtíð fyrir fólkið og fyrirtækin sem hér starfa.
Níunda sæti -

Pálmi Freyr Gunnarsson
Fæddur og uppalinn Hornfirðingur og hef búið hér nánast alla ævi. Ég er þriggja barna faðir og í sambúð. Ég starfa sem flugmaður hjá Atlantsflugi og rek jafnframt Bílaverkstæði Gunnars Pálma.
Ég hef sterkan áhuga á að styðja við atvinnulíf heimamanna og leggja mitt af mörkum til að efla sveitarfélagið sem aðlaðandi valkost fyrir ungt fjölskyldufólk.
Tíunda sæti
-

Antonía Malmquist Arnórsdóttir
Ellefta sæti
-

Magdalena Anna Zazulak
Ég flutti til Íslands frá Póllandi árið 2018 og er með háskólamenntun í neyðarstjórnun og öryggismálum. Ég starfa í hótelgeiranum og tek einnig þátt í rekstri snyrtistofu í bænum. Í frítíma mínum stunda ég veiði með kærasta mínum og hef mikinn áhuga á bókmenntum.
Tólfta sæti
-

Ágúst Már Ágústsson
Flutti á Höfn 1986 og ólst upp í Nesjahverfi. Í dag starfa ég sem verkstjóri í Vélsmiðjunni Foss / Horn raf og vélaverkstæði. Er einnig slökkviliðsmaður og gegni stöðu varaslökkviliðsstjóra. Ég er menntaður málmsmiður, hef lokið námi frá Háskólanum á Akureyri og starfa jafnframt sem eldvarnareftirlitsmaður. Ég er giftur og á fjögur börn
Þrettánda sæti -

Ómar Antonson
Ómar á Horni giftur Kristínu Gísladóttir og eigum við 3 börn, 5 barnabörn og 3 barnabarnabörn. Eigum og rekum fyrirtækið Litlahorn.ehf sem er í fjölbreyttum rekstri á Horni í Nesjum. Áhugamál eru heimshornaflakk og hestar.
Ég býð fram krafta mína og reynslu fyrir íbúa sveitarfélagsins.
Fjórtánda sæti