Aðalgata bæjarins, framkvæmd án heildarsýnar.

Við viljum öll að bærinn okkar sé fallegur og að aðalgatan endurspegli þann metnað. Þess vegna eru það mikil vonbrigði að sjá hvernig til hefur tekist við framkvæmdir á Hafnarbraut. Hér er talað um framkvæmdirnar frá ráðhúsi að Þórshamri. Nýtt malbik og hellulögn lofuðu góðu. En í stað þess að skila heildstæðri og vandaðri niðurstöðu var nýlagt malbikið sagað upp til að setja niður hraðahindranir, ekki eina, heldur fjórar á innan við eins kílómetra kafla. Þetta er ekki skipulag, þetta er skammsýni.

Afleiðingarnar eru augljósar. Heimamenn forðast götuna þar sem hindranirnar fara illa með bíla. Holur hafa myndast fyrir framan þær og auka enn á vandann. Þetta eru ekki aðeins óþægindi heldur er þetta kostnaður fyrir íbúa. Það dugir ekki að eyða fúlgum fjár í framkvæmdir ef þær eru ekki hugsaðar til enda og viðhaldi er ábótavant. Hér vantar ábyrgð, eftirfylgni og skýra heildarsýn.

Bærinn okkar á betra skilið.

Herdís I. Waage,

Þriðja sæti Miðflokksins á Hornafirði

Previous
Previous

Skynsemi í sorpmálum: Lausnir sem virka fyrir íbúa og umhverfi.

Next
Next

Bæjastjóraefni Miðflokksins