Skynsemi í sorpmálum: Lausnir sem virka fyrir íbúa og umhverfi.
Það er að mörgu að huga þegar kemur að sorpmálum í okkar sveitarfélagi. Á næstu árum verða gerðar miklar kröfur til málaflokksins, en oft eru þær settar fram án þess að taka tillit til aðstæðna Sveitarfélaga. Sama regluverk er lagt yfir alla óháð stærð, staðsetningu og getu. Sorpmálin í sveitarfélaginu kalla á skýra stefnu og skynsamar lausnir. Við hjá Miðflokknum X-M leggjum áherslu á að sorpþjónusta séu bæði hagkvæm og þjónustumiðuð. Við viljum raunhæfar lausnir sem styðja við aðstæður á hverjum stað. Eðlileg krafa íbúa er að sorpmál séu í góðu horfi, bæði hvað varðar þjónustu og kostnað. Við megum ekki missa okkur í dýrum breytingum sem taka ekki mið af raunveruleikanum.
Vigtun og klippikort
Innleiðing á vigtun sorps hefur að okkar mati ekki tekist sem skyldi. Aðstaðan á móttökustöðinni uppfyllir einfaldlega ekki kröfur til að slík þjónusta sé sanngjörn og skilvirk. Við teljum eðlilegast að hinkra með þessi skref þar til réttur búnaður er kominn á staðinn. Á meðan við komum innviðum í lag, munum við taka aftur upp klippikortin til að tryggja stöðugleika og réttláta gjaldtöku fyrir íbúa.
Fjárhúsavík: Framtíðarlausn í staðsetningu
Núverandi móttökustöð fellur illa að umhverfi sínu og reksturinn á þar ekki heima til framtíðar. Við sjáum Fjárhúsavík sem ákjósanlegan stað fyrir nýja og glæsilega móttökustöð. Þar er gott rými fyrir uppbyggingu, hæfileg fjarlægð frá byggð og svigrúm til að sinna málaflokknum um ókomna tíð án þess að valda ónæði, auk þess sem grenndaráhrif (lykt, sjónmengun) minnka í byggð.
Nýting á tækni og umhverfisvernd
Við viljum nýta þann búnað sem þegar er til staðar. Með því að pressa og bagga allt heimilissorp í þeirri pressu sem sveitarfélagið á þegar, má spara allt að 90% af plássi á urðunarstað. Með því að búa til bagga skapast dýrmætur sveigjanleiki; hægt er að urða með mun skilvirkari hætti, geyma til brennslu síðar eða senda til brennslu þegar færi gefst. Þetta er hrein hagsmunagæsla fyrir sveitarfélagið.
Þjónusta við dreifbýlið
Þörfin fyrir grenndarstöðvar í sveitunum er augljós, en við verðum að leysa það verkefni á snjallan hátt. Í stað dýrra fastra stöðva leggjum við til færanlega grenndarstöð. Hún gæti verið á ferðinni á föstum tímum eða verið hluti af skráningardögum þar sem íbúar panta þjónustu. Þannig mætum við þörfum íbúa án þess að leggja í óhóflegan rekstrarkostnað. Þessi lausn fyrir dreifbýlið er nútímaleg og gæti verið mun hagkvæmari en að byggja upp fasta innviði á mörgum stöðum sem krefjast stöðugs viðhalds og eftirlits.
Við hjá Miðflokknum X-M viljum raunhæfar lausnir – lausnir sem virka fyrir fólkið og byggja á heilbrigðri skynsemi.