Bæjastjóraefni Miðflokksins
Fulltrúar Miðflokksins á Hornafirði leggja áherslu á að embætti bæjarstjóra sé fyrst og fremst faglegt stjórnunarstarf sem krefst ríkrar reynslu af rekstri, stjórnsýslu og opinberum fjármálum. Með hagsmuni bæjarbúa að leiðarljósi teflir flokkurinn ekki fram sérstöku bæjarstjóraefni úr hópi fulltrúa flokksins. Þess í stað er það vilji okkar að staða bæjarstjóra verði auglýst opinberlega og farið verði í opið, faglegt ráðningarferli þar sem hæfni, menntun og reynsla umsækjenda verði lögð til grundvallar.
Markmiðið með þessari nálgun er að tryggja að hæfasti einstaklingurinn hverju sinni stýri stjórnsýslu bæjarins, óháð flokkspólitískum tengslum. Með því að skilja á milli pólitískrar stefnumótunar bæjarstjórnar og faglegrar framkvæmdastjórnunar bæjarins, styrkjum við stjórnsýsluna, aukum gagnsæi og tryggjum festu í rekstri sveitarfélagsins til framtíðar.
Miðflokkurinn á Hornafirði